Útskriftarsýning haust 2021
Prentformar
Kápa og innsíður
Embla
Embla kápa
Lokaverkefni seinni annar er lífstílstímaritið Embla. Hver nemandi setur upp 9 efnissíður og eina síðu með leiðara, blaðhaus og efnisyfirliti, auk kynningaropnu. Þar að auki á hver nemandi að hanna 3 heilsíðuauglýsingar og eina kápu, samtals eru þetta því 16 síður. Fyrir tímaritið mitt ákvað ég að fjalla mest um svefn og mikilvægi hans. Einnig var hugmynd mín að hafa Ísland og töfra þess sem þema í tímaritinu. Því vildi ég fjalla um hana Sóley en hún stofnaði fyrirtækið Sóley Organics sem framleiðir íslenskar hágæða húðsnyrtivörur úr villtum íslenskum jurtum. Og að lokum fjalla ég um hann Pétur Thomas ljósmyndara og hans frábæru verk á samspili umhverfis og manns.
Fyrir kápuna fékk ég hugmyndina þegar ég rakst á listsýningu þar sem hönnuðurinn hafði búið til þrívíddar listaverk úr einungis pappír. Hannaði ég kápuna út frá þeirri hugmynd.










